Bloggsvæði Hildar
04.05.2006 13:57:43 / hildur

Bjöllukórinn

Ég var að spila með Bjöllukórnum á opnunarhátíð Listar án landamæra.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 20:43:43 / hildur

Gleðilega páska

Hæ!!

Gleðilega páska, vonandi fengu þið öll ROSA gott páskaegg í dag :)

Ég er búin að hafa það rosalega gott yfir páskana, það er æðislegt að vera í fríi.  Ég fór til Svönu og Ásgeirs á miðvikudaginn og kom til baka á föstudaginn.  Það var mjög gaman hjá þeim :haha:  Svo þegar ég kom heim á föstudaginn þá fór ég með Völu systir á rúntinn á nýja bílnum, það var mjög gaman að fara bara við tvær saman að keyra.

Í dag komu Vala og Óskar til mín og pabba í hádeginu og við fengum okkur skinkuhorn sem mamma bakaði í gær, en mamma var að vinna þannig að hún var ekki með okkur í hádeginu.  En svo fórum við öll saman til ömmu og afa í páskakaffi og þar var öll fjölskyldan.  Það var rosalega gaman að sjá ömmu og afa.

Jæja.... núna ætla ég að fara að horfa á sjónvarpið með fjölskyldunni og borða páskaegg! :D

Bless bless og hafið það gott 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 14:19:37 / hildur

Skólinn

Ég að fara að skemmta mér á eftir. Mér finnst skemmtilegt í skólanum. stærðæði og tölvur skemmtilegast.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2005 14:15:59 / hildur

Um mig

Ég heiti Hildur. Ég spila á hljómborð. Ég  er líka að syngja. Ég hlusta oft á diska og útvarp 95,7. Ég er líka oft í tölvunni  að skoða veðurspána og dagskrána í sjónvarpinu. Ég horfi oft á sjónvarpið og líka á dvd mynd.  Ég hef tvö herbergi.

» 1 hafa sagt sína skoðun